Nú er komið sumar og um að gera að fara dusta rykið af gamla
flugdrekanum og fara út að fljúga. Ef menn eiga ekki flugdreka þá er um
að gera skella sér út í næstu leikfangaverslun og kaupa flugdreka eða
bara smíða sjálfur - það er ekki svo erfitt.
Myndatökur með flugdrekum (KAP)
Skrifað af Gos
Myndatökur með flugdrekum eða KAP (Kite Aerial Photography) er ein aðferð til að taka loftmyndir og vinsælt tómstundagaman víða um heim. Aðferðin felst í því að myndavél er fest á fluglínu flugdreka sem settur er á loft og þannig er myndavélin hafin til himins. Til að smella af er oftast notast við fjarstýringu, tímastillingu eða sjálfvirkan búnað af einhverju tagi. Búnaðurinn getur verið allt frá því að vera einfaldur og ódýr upp í að vera mjög dýr og flókinn.
Upphaf KAP
Áhöld eru um það hvenær fyrsta ljósmyndin var tekin með flugdreka. Sumir segja að breski veðurfræðingurinn E.D. Archibald hafi tekið fyrstu myndina árið 1882. Það eru þó mun fleiri sem segja ljósmyndatökur með flugdreka eigi rætur sínar að rekja til Frakklands og að það hafi verið frakkinn Arthur Batut sem tók fyrstu ljósmyndina árið 1888. Batut smíðaði sjálfur létta myndavél sem hann festi á trégrindina á tígullaga flugdreka og notaði hann kveikiþráð til að smella af. Árið 1890 skrifaði Batut fyrstu bókina um myndatökur með flugdrekum sem ber heitið La photographie aérienne par cerf-volant og sama ár hóf hann samstarf við annan franskan ljósmyndara Emile Wenz að nafni og varði það samstarf í nokkur ár. Þeir Batut og Wenz hurfu fljótlega frá því að festa myndavélarnar beint á grindur flugdrekanna en hengdu þær frekar í línu sem síðan var tengd fluglínu flugdrekans.Þannig náðist aukinn stöðugleiki og einnig var hægt að komast að myndavélinni án þess að taka flugdrekann niður. Á næstu árum varð mikið þróun í aðferðum og búnaði við myndatökur með flugdrekum og fleiri hófu að taka myndir meðal annars í Bandaríkjunum.
„Síðustu þrjátíu kílómetrana var ég orðinn svo þreyttur að ég fann
ekki fyrir fótleggjunum,“ segir franski jaðaríþróttamaðurinn Jerome
Josserand. Á föstudag varð hann sá fyrsti til að ferðast þvert yfir
Ísland á svokölluðum snjódreka. Með snjódreka láta menn vindinn draga
sig áfram á skíðum eða snjóbretti, og geta þannig náð verulegum hraða,
en á tímabili náði Jerome sextíu kílómetra hraða á skíðunum. Hann
kláraði ferðina á átta og hálfum tíma.
„Þetta er rosalegt afrek hjá honum og maður trúir því varla að hann
sé búinn að þessu. Vindurinn fór upp í tuttugu metra á sekúndu á
tímabili, en til samanburðar má nefna að ég pakka saman ef hann fer í
tíu metra á sekúndu,“ segir Gísli Steinar Jóhannesson hjá Paragliding
sem aðstoðaði Jerome. (frétt af vísir.is)
Ætlar að þvera Ísland á snjódreka á einum degi
Skrifað af Gos
Franski ofurhuginn Jerome Josserand ætlar sér að þvera Ísland í byrjun Mars. Jerome er atvinnumaður í því að láta stóran flugdreka draga sig eftir mjöllinni, en fyrirbærið er kallað „snowkiting" upp á ensku. Hann á meðal annars heimsmetið í stökki á slíku tæki en hann fór um 450 metra í einu stökki.Til þess að þvera landið frá norðri til suðurs þarf hann að ferðast á miklum hraða í gegnum hættulegar hálendisaðstæður, að því er fram kemur í tilkynningu. „Eftir árs undirbúning veit ég að ég er tilbúinn á líkama og sál til þess að þvera hið ógnvænlega íslenska hálendi,“ segir Jerome.
Vítt og breitt - flugdrekar
Skrifað af Gos
Um daginn hitti ég Pétur Halldórsson útvarpsmann á túninu sunnan Verkmenntaskólans á Akureyri og spjallaði við hann um flugdreka og m.a flugdrekakynningu á Jónsmessuvöku í Kjarnaskógi. Viðtalið var síðan hluti af þættinum Vítt og breytt á RÚV sem var á dagskrá þann 23. júní. Notið spilarann hér að neðan til að hlusta á viðtalið.