Kitesurf kynning á Akureyri |
|
|
Skrifað af Gos
|
Laugardaginn 16. júní stendur silglingaklúbburinn Nökkvi á Akureyri fyrir kynningu á kitesurf á Pollinum á Akureyri. Dönsk seglbretta og kitesurf-kona, Katrine Frandsen sem er þessa dagana í heimsókn hjá Nökkva mun sjá um kynninguna en laugardagur verður seglbrettadagur hjá Nökkva þar sem verið er að sýna 7 ný seglbretti sem fyrirtæki í bænum hafa afhent klúbbnum í sumar. Um leið verður tækifærið notað og kitesurf kynnt fyrir norðlendingum en þetta jaðarsport er nánast óþekkt við Eyjafjörð. Heimasíða Nökkva er á iba.nokkvi.is
|