Skrifað af Gos
|
Sunnudaginn 11. júlí 2010 er öllum stoltum flugdrekaeigendum stefnt
til Viðeyjar. Undanfarin ár hefur sú hefð skapast að bjóða gestum
Viðeyjar að smíða sína eigin flugdreka upp á gamla mátann og hafa
margir ævintýralegir drekar orðið til og farið á flug í Viðey.
Í tilkynningu frá verkefnastjóra Viðeyjar segir að nú sé markið sett
enn hærra en áður og stefnt sé á að setja Íslandsmet í fjölda flugdreka
á lofti í einu. Flugdrekasmíðin hefst um klukkan 11:30 en klukkan 14:30
verða allir flugdrekar settir á loft
|