Á gjörgæslu eftir fallhlífarslys |
Skrifað af Gos
|
Eftirfarandi frétt birtist á fréttavef Vísis 28.11.2006: Karlmaður á fertugsaldri slasaðist alvarlega í fallhlífarslysi við Svignaskarð í Borgarfirði rétt eftir hádegið á sunnudaginn.
Maðurinn var að fljúga fallhlíf, sem útivistarmenn nota til að láta draga sig í vindi, þegar hlífin lenti í snarpri vindhviðu. Dróst maður-inn með henni tíu metra og brotlenti ofan í skurði.
Maðurinn rifbeinsbrotnaði og hlaut brjóstholsáverka. Hann var fluttur á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut þar sem hann gekkst undir aðgerð. Að sögn svæfingalæknis er manninum haldið sofandi í öndunarvél. (Vísir 28.11.2006)
Sláandi frétt sem vekur mann til umhugsunar um öryggismál í kraftdrekasportinu. Kraftdrekar eru hannaðir til að mynda gríðarlegt tog og mikilvægt að hafa í huga að kraftdrekaflug getur verið hættulegt ef ekki er farið varlega. Þetta á bæði við um byrjendur jafnt sem lengra komna.
Til að minnka líkur á óhöppum og meiðslum er mikilvægt að fara varlega og gott er að hafa eftirfarandi punkta í huga:
- Aldrei taka óþarfa áhættu þegar flogið er
- Aldrei vanmeta krafta vindsins
- Lestu leiðbeiningar um búnaðinn vandlega
- Notaðu nauðsynlegan öryggisbúnað (hjálmur, sleppibúnaður oþh.)
- Lærðu að fljúga drekanum í litlum vindi
- Taktu á loft við jaðar vindgluggans þegar vindur er sterkur
- Aldrei fjúga í vindi sem þú (eða búnaðurinn) ræður ekki við
- Yfirfarðu búnað fyrir hvert flug og skiptu um hluti ef þarf
- Aldrei fljúga nærri rafmagnslínum, trjám, götum, flugvöllum eða í myrkri
- Aldrei binda sjálfan þig við neitt á meðan flogið er
- Prófaðu öryggis-sleppibúnað fyrir hvert flug
- Veldu hentugan stað til að fljúga á þar sem ekki er mikið um fyrirstöður
Meiri lesningu um öryggismál er að finna hérna á spjallþráðunum. Mig langar sérstaklega að benda á mjög góða grein frá Tilkynningarskyldunni og vonast til að menn fari varlega og eigi ánægjulegan og slysalausan vetur. Við óskum að sjálfsögðu ofangreindum manni skjótum og góðum bata ! ! ! ! |